Fréttir

lotto

35 Milljónir reyndust ekkert grín!

24. nóv. 2023, 13:30

Hún reyndist mjög heppin, en ekki mjög trúgjörn, fjögurra barna móðirin sem var ein með allar tölur réttar í Lottó þarsíðasta laugardag. Hún var alveg viss um að einhver væri að grínast í henni þegar fulltrúi frá Íslenskri getspá hafði samband með góðu fréttirnar; að hún hefði unnið rúmlega 35 skattfrjálsar milljónir.

Að símtalinu loknu fletti hún því númerinu sem hringt var úr upp á já.is til að kanna hver stæði að baki þessu vel leikna símaati. Það var ekki fyrr en staðfestingin hafði fengist úr símaskránni að hún leyfði sér loksins að fagna þessum frábæru tíðindum.

Sú heppna er enn í skýjunum með vinninginn og segist ætla að þiggja ókeypis fjármálaráðgjöf ásamt eiginmanni sínum en þau sjá fram á að geta greitt niður skuldir og jafnvel keypt heppilegra húsnæði fyrir sína stóru fjölskyldu.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk,
sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Lottó - 4faldur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónus vinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 4faldur næsta laugardag! Eins fór með 1. vinning í Jóker kvöldsins en sjö voru með 2. vinning sem færir þeim 100 þúsund krónur. Einn miði var keyptur á Doddagrilli í Garði, einn á AK-INN, Akureyri, einn í Lottó-appinu o... Lesa meira

lotto

Lottó - þrefaldur næst!

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær rúmar 1,6 milljón krónur í sinn hlut. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en þrír miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vin... Lesa meira

lotto

Tveir heppnir áskrifendur með Jókerinn!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvöfaldur næsta laugardag. Bónusvinningurinn gekk heldur ekki út í þetta sinn. Tveir heppnir áskrifendur voru með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hvor þeirra tvær milljónir króna í sinn hlut. Þá voru átta miðhafar með 2. v... Lesa meira

lotto

Lottó - tveir með 1. vinning

Það beit hressilega á agnið hjá tveimur spilurum sem tóku þátt í Lottó að þessu sinni en þeir skiptu með sér þreföldum potti og hlýtur hvor þeirra rétt tæplega 17,9 milljóna króna vinning.  Annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn í appinu. Einn var með 1. vinning í Jóker og fær hann 2ja milljóna króna vinning, miði... Lesa meira

lotto

Lottó - Þrefaldur næst!

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær hann rúmar 960 þúsund krónur í sinn hlut. Fyrsti vinningur í Jóker gekk ekki út að þessu sinni en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Tveir m... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir